Hálkubaninn virkar hraðar en hefðbundið hálkusalt og myndar ekki tauma eða rákir á gangbrautum eða gólfum. Skemmir ekki malbik, gólfefni, teppi, skó eða lakk á bílum. Hálkubanann má einnig nota sem fyrirbyggjandi ef að von er á næturfrosti og því hægt að bera hálkubanann á í litlu magni við innganga við verslanir og aðra staði.