ABENA Intensive Care hentar öllum húðgerðum mjög nærandi og hjálpar húðinni að endurbyggja náttúrulegt rakajafnvægi. Kremið hentar vel fyrir mjög þurra, pirraða og skemmda húð sem og ofnæmishúðbólgu, exem, útbrot og psoriasis. Hátt fituinnihald (70%) hjálpar til við að endurbyggja húðina án þess að húðin sé feit. Hægt að nota á hendur jafnt sem líkama, andlit og jafnvel á fætur vegna mikils fituinnihalds. Kremið hefur virkilega góð áhrif frá því að vera borið á í allt að 8 klst. Má nota á bæði börn og fullorðna. Kremið dregur ekki úr áhrifum klórhexidíns. Inniheldur engin litarefni eða ilm. Til daglegrar notkunar á þurra og viðkvæma húð.